top of page

Ráðstefnuverkefnið var með stærri verkefnum annarinnar og frekar umfangsmikið. Það var mikið af gögnum sem þurfti að græja og svo auðvitað að finna gott heildarútlit sem myndi grípa augað.

BreyttVidhorf_logo.jpg

Ráðstefna um baráttu gegn rasisma á Íslandi

Ísland hefur orð á sér að vera land jafnaðar og fordómaleysis en það upplifa það ekki allir þannig. Kynþáttafordómar eiga sér margar birtingarmyndir og krauma undir yfirborðinu hér á landi sem annars staðar. Samtökin Samkennd standa fyrir ráðstefnu um baráttuna gegn rasisma á Íslandi dagana 1.–2. desember þar sem ætlunin er að ræða þessi mál og leita svara spurningunni; Er hægt að uppræta þetta samfélagsmein og þá hvernig?

Jafnretti_milli.jpg
Verk2_logo_mba.jpg

Samtökin Samkennd voru stofnuð þann 6. maí 2019 af áhugafólki um að uppræta hvers kyns kynþáttafordóma í íslensku samfélagi. Samtökin eru öllum opin og hyggjast ná markmiðum sínum með fræðslu og samtali á milli fólks af ólíkum uppruna, bæði með óformlegum fundum þar fólk hittist og deilir reynsluheimi sínum með öðrum af ólíkum uppruna en einnig með ráðstefnum og málþingum um málefni sem varða baráttuna gegn kynþáttafordómum. Ráðstefnan Breytt viðhorf er fyrsta stóra ráðstefnan sem Samkennd stendur fyrir en stefnt er að halda alla vega eina slíka ráðstefnu á ári.

Öll Gögn ráðstefnunnar

App

Prótótýpa

frame.png
iphone.png
bottom of page